Hraustir menn í heila öld

Þann 3. janúar 2026 voru 100 ár liðin frá stofnun Karlakórs Reykjavíkur. Af því tilefni er kórinn með tónleikaröð dagana 22., 23., 24. og 25. apríl.

Karlakór Kjalnesinga tekur þátt í þessum viðburði og kemur fram á tónleikunum þann 22. apríl ásamt Karlakór Kópavogs. Tónleikarnir eru í Langholtskirkju og hefjast kl. 10.

Við óskum öllum félögum, sem og eldri félögum, innilega til hamingju með þessi tímamót.