Vortónleikar 2026 – Fyrr má nú aldeilis…

Karlakór Kjalnesinga heldur sína árlegu vortónleika fimmtudaginn 16. apríl kl. 20 og laugardaginn 18. apríl kl. 16. Dagskrá fjölbreytt að vanda þar sem blandað er saman hefbundnum karlakórsperlum við vinsæl og þekkt popplög. Eitthvað fyrir alla.

 

Miðasala á midix.is og við innganginn. Miðaverð kr. 5.000. 

Einsöngvarar koma úr röðum kórmanna og eru Magnús Guðjónsson 1. bassi, Birgir Þór Gylfason 2. tenór, Ib Göttler 1. tenór, Pálmi Pálsson 1. tenór og Jóhannes Freyr Baldursson 1. tenór. Þá stígur á stokk fjórraddaður sönghópur sem telur tíu kórfélaga og tekur lagið.

Hljómsveit skipa: Benedikt Brynleifsson, trommur, Jón Elvar Hafsteinsson, gítar, Jón Rafnsson, bassi og Kjartan Valdemarsson, píanó. Stjórnandi kórsins er Lára Hrönn Pétursdóttir.