Karlakór Kjalnesinga hefur ráðið Láru Hrönn Pétursdóttir í starf kórstjóra frá og með hausti 2023.
Lára hefur víðtækan grunn úr tónlist, lærði á orgel, harmonikku, gítar, básúnu og var í lúðrasveit, jazzhljómsveit, sinfóníuhljómsveit og bjöllukór í æsku. Hún hefur lokið 8. stig í klassískum söng og sungið bæði með atvinnu og áhugamannakórum og stjórnað sönghópum. Lára segist vera þokkalegur harmonikkuleikari, sé liðtæki í lagaútsetningum og hefur lengi dreymt um að vera í karlakór!
Lára er gift Eiríki Sveini Hrafnssyni og eiga þau saman 3 börn og hund. Búa í Mosfellsbæ en Lára er fædd og uppalin í Stykkishólmi. Fyrir utan tónlistarmenntun er Lára með BS próf í sjávarútvegsfræði og 3ja stig skipstjórnar og hefur verið skipstjóri, stýrimaður, háseti og kokkur á farþegaskipum, ferjum og fiskiskipum. Á sumrin stundar Lára strandveiðar frá Stykkishólmi.
Kórinn býður Láru velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins.